0
Karfan þín
Flest okkar bíða í ofvæni eftir að kveðja árið 2020 sem hefur reynt á okkur meira en flest önnur ár. Þessi poki er tilvalinn undir flöskuna sem notuð verður til að skála þetta herrans ár burt um leið og við tökum fagnandi á móti nýju ári.
Pokarnir eru úr þykkum (407gsm) bómullarstriga sem er Fairtrade vottaður og tekur allt að 1.5 lítra flösku. böndin eru 30cm löng.
fáanlegir ljósir með svörtu prenti og svartir með gull prenti.
Handþrykkt á prentverkstæði okkar í Álfheimum með umhverfisvænum, vatnsblandanlegum prentlitum sem eru án PVC plastefnis og Þalíns. Prentið er svo hitað upp í 175°C sem festir það við þræði efnisins og því hægt að þvo það.