0
Karfan þín
Endurunnin hönnun frá síðustu áramótum!
Flest okkar bíða í ofvæni eftir að kveðja árið 2021 sem hefur reynt á okkur meira en flest önnur ár (að síðasta ári undanskildu). Þessi poki er tilvalinn undir flöskuna sem notuð verður til að skála þetta herrans ár burt um leið og við tökum fagnandi á móti nýju ári.
Pokarnir eru úr þykkum (407gsm) bómullarstriga sem er Fairtrade vottaður og tekur allt að 1.5 lítra flösku. böndin eru 30cm löng.
gullprent á svartan poka.
Handþrykkt á prentverkstæði okkar í Álfheimum með umhverfisvænum, vatnsblandanlegum prentlitum sem eru án PVC plastefnis og Þalíns. Prentið er svo hitað upp í 175°C sem festir það við þræði efnisins og því hægt að þvo það.
Hægt er að kaupa þessa vöru í heildsölu (lágmark 20 stykki). Tilvalið undir t.d. kúnna- og starfsmannagjafir. Við bjóðum einnig uppá sérmerkta flöskupoka. Áhugasamir hafi samband við farvi@farvi.is