0
Karfan þín
RISOPRENT
Risoprentun byggist á að yfirfæra myndverk á stensil. Viðeigandi litatromla er sett í prentvélina sem útbýr stensill/master á filmu og vefur honum svo utan um prenttromluna. Þegar prentað er færist pappírinn flatur undir tromluna sem snýst og þrýstir farvanum/litnum í gegnum stensilinn og færir þannig myndverkið á pappírinn. Einn litur er prentaður í einu í mikilli upplausn (600dpi). Ef nota á fleiri liti þarf að skipta út tromlu og pappírinn er settur aftur í gegnum vélina.
Fyrstu Riso prentvélarnar komu á markað á áttunda áratug síðustu aldar og hafa verið notaðar til fjölföldunar í stórum stofnunum, kirkjum og skólum um allan heim. Á síðustu árum hafa hönnuðir, ljósmyndarar, teiknarar og myndlistarmenn tekið prenttækninni fagnandi með sínum hreinu litum, miklu upplausn og einstakri útkomu.
UMHVERFIÐ
Prentfarvinn er unnin úr olíu sem unnin er úr hrísgrjónahíði og inniheldur engin VOC * efni sem gerir Risograph að einni umhverfisvænustu prentaðferð í heimi. Svo er masterinn/stensillinn unninn úr bananatrefjum:D
* VOC- Volatile Organic Compounds. óstöðug lífræn efnasambönd eins og t.d. bensín og mynda óhollar gufur við þornun. VOC efni má meðal annars finna í málningu, úðabrúsum, lími og skordýraeitri.
LITIR
Við erum með 7 liti á lager - rauðan, grænan, bláan, gulan, appelsínugulan, gylltan og svartan. Riso blek hefur hálfgagnsæjan eiginleika sem gerir það ð verkum að skemmtilegt er að blanda við aðra liti. Hægt er að nálgast prentaðar litaprufur hjá okkur í Álfheimunum.
VERÐDÆMI - risoprent - A3
20 stk. | 100 stk. | 500 stk. | 1000 stk. | |
1 LITUR | 9.090 kr. | 17.339 kr. | 52.016kr. | 82.258 kr. |
2 LITIR | 18.790 kr. | 29.435 kr. | 77.823 kr. | 112.097 kr. |
3 LITIR | 27.661 kr. |
41.532 kr. |
103.629 kr. |
141.935 kr. |
4 LITIR | 36.532 kr. |
53.629 kr. |
129.435 kr. |
171.774 kr. |
5 LITIR | 45.403 kr. |
65.726 kr. |
155.242 kr. |
201.613 kr. |
VERÐDÆMI - risoprent - A3 þar sem einn af litunum er Metallic gold
20 stk. | 100 stk. | 500 stk. | 1000 stk. | |
1 LITUR (gull)
|
11.532 kr. | 22.984 kr. | 58.065 kr. | 90.323 kr. |
2 LITIR
|
20.403 kr. |
35.081 kr.
|
83.871 kr.
|
120.161 kr.
|
3 LITIR
|
29.274 kr. |
47.177 kr.
|
109.677 kr.
|
150.000 kr.
|
4 LITIR
|
38.145 kr. |
59.274 kr.
|
135.484 kr.
|
179.839 kr.
|
5 LITIR
|
47.016 kr. |
71.371 kr.
|
161.292 kr.
|
209.677 kr.
|
ATH! Verðin eru með skurði og pappír en ÁN virðisaukaskatts.
Lágmarksupplag er 20 stk. og verðin miðast við að fá tilbúin prentskjöl, sjá leiðbeiningar um skil prentskjala HÉR
Hægt er að fá prentað prufueintak og kostar það 4.500 kr. +vsk (miðað við eins lita prent)
Fyrir umsvifameiri verkefni, hafið samband og við finnum verð.