"Skjáskot/Screengrab"- númeraður og áritaður bolur

15.000 kr
  • VÖRULÝSING
  • afhending og greiðslumöguleikar
VÖRULÝSING

Bolurinn er teiknaður af Skarphéðni Bergþórusyni og er hluti af sýningunni  "Tvínóna forever" sem stendur yfir í Farva til 2. maí, Álfheimum 4, 104Reykjavík. 

"Í fæðingarorlofinu sá ég gamlan þátt með Birni Th. þar sem hann ræddi í sjónvarpssal um Kjarval. Hann sat í stúdíói við borð og benti á verkin á skjá og ræddi um listamanninn. Í salnum sátu áhorfendur og rétt glitti í stúlku sem sat þar, sneri baki við okkur sem fylgdumst með heima, hún var greinilega í Stüssy-hettupeysu, sem var einn stærsti pósturinn í tísku 10. áratugarins. Hún og peysan áttu jafnmikið heima í þættinum og þau voru líka í algjörri andstæðu við Björn Th. og Kjarval. Í mínum augum brann þetta allt saman í eitt. "

Bolirnir eru framleiddir í takmarkaða upplaginu 100 og koma með númeruðu og árituðu vottorði listamanns. 

Fleiri verk af sýningunni er hægt að skoða hjá okkur í Álfheimunum eða hér:


Handþrykkt á prentverkstæði okkar í Álfheimum með umhverfisvænum, vatnsblandanlegum prentlitum sem eru án PVC plastefnis og þalíns. Prentið er  hitað upp í 175°C sem festir það við þræði efnisins og verður þannig þvottahæft.

Bolurinn er úr 240 gsm þykkri lífrænni bómull frá Stanley/Stella - "Relaxed" snið (vítt snið, sjá stærðartöflu)

afhending og greiðslumöguleikar
Senda eða sækja
Þú getur valið um að sækja pöntunina þínar í verslunina okkar í Álfheimum 4, á næsta pósthús/póstbox, Drop eða fá hana senda alla leið upp að dyrum.
Pantanir sem eru 10.000 kr. og hærri, sendum við frítt með póstinum heim að dyrum. Aðrar sendingar eru verðlagðar samkvæmt verðskrá Póstsins.
Greiðslur
Þú getur valið um að greiða með kreditkorti eða millifærslu

Fleiri áhugaverðar vörur