0
Karfan þín
Kynnstu töfraheimi RISO í vinnubúðum Farva. Settu saman veggspjald í 2 litum, prentum það svo saman og taktu með heim 10 stk. A3 plaköt í tveimur litum.
Vinnubúðirnar:
- Stutt kynning á riso og vinnsluaðferðum við tveggja lita prent, saman gerum við eitt prufuprent til að allir átti sig ferlinu.
- Þú setur saman þitt veggspjald með kolum, bleki, túss, ljósmyndum, letri o.fl. Við verðum ykkur innan handar í ferlinu.
- Prentum veggspjaldið ykkar í 10 eintökum, tveimur litum að ykkar vali og allir vinir.
Athugið:
Farvi skaffar allt efni en þér er velkomið að koma með eigið útprentað efni (ljósmyndir eða grafík) en passa þarf að hafa það ekki stærra en A4 og ekki á stafrænu formi.
Vinnubúðirnar henta byrjendum sem og lengra komnum.
Staðsetning: Farvi , Álfheimar 4, 104 Reykjavík
Fjöldi þáttakenda: 6-8
Tímasetning: þriðjudagskvöld - klukkan 19:30
Lengd 2,5-3 klukkustundir
Verð: 14.900 kr.
Afbókun/endurgreiðsla: Til að fá námskeið endurgreitt að fullu þarf að afbóka fjórum dögum fyrir námskeið - annars er endurgreitt að helming.
Vinnubúðirnar eru einnig tilvaldar fyrir vina- og vinnustaðahópa til að koma saman og gera eitthvað skemmtilegt og skapandi sem skilur eftir góðar minningar. Fyrir nánari upplýsingar, hópapantanir eða aðrar dagsetningar hafið samband í síma 546 8225 eða farvi@farvi.is.
"Dóttir mín er mikil listakona og hana langaði að prófa nýjar aðferðir við að þróa listaverkin sín. Við ákváðum því að skella okkur mæðgurnar saman til Farva á Riso workshop. Þetta var alveg meiriháttar kvöldstund sem við ætlum klárlega að endurtaka.
Það sem var meiriháttar: Heimilislegur andi og nánast einkakennsla og leiðsögn í tækninni þar sem hópurinn var ákkúrat ekki of stór né lítill. Svo er bara svo langt síðan ég hef gefið mér tíma til að staldra við og teikna - eitthvað sem ég ætti að gera meira af."