0
Karfan þín
Kynnstu töfraheimi RISO í vinnubúðum Farva! Settu saman veggspjald, prentum það saman og þú tekur með heim 10 stykki af A3 plakati í tveimur litum. Engar tölvur - bara þú, hendur þínar og hugur sem sleppa sköpunarkraftinum lausum.
Vinnubúðirnar:
- Stutt kynning á riso og vinnsluaðferðum við tveggja lita analog prent.
- Þú setur saman þitt A3 veggspjald með 'collage-aðferð' og notar til þess kol, blek, túss, ljósmyndir, letur o.fl. Við verðum ykkur innan handar í ferlinu.
- Prentum saman í tveimur litum að ykkar vali og allir vinir.
Athugið:
Farvi skaffar allt efni en þér er velkomið að koma með eigið útprentað efni (ljósmyndir eða grafík) en passa þarf að hafa það ekki stærra en A3 og ekki á stafrænu formi.
Námskeiðið hentar byrjendum sem og lengra komnum.
Staðsetning: Farvi , Álfheimar 4, 104 Reykjavík
Fjöldi þáttakenda: 6-8
Tímasetning: Klukkan 19.30
Lengd: 3 klukkustundir
Verð: 14.900 kr.
Afbókun/endurgreiðsla: Til að fá námskeið endurgreitt að fullu þarf að afbóka fjórum dögum fyrir námskeið - annars er endurgreitt að helming.
Vinnubúðirnar eru einnig tilvaldar fyrir vina- og vinnustaðahópa til að koma saman og gera eitthvað skemmtilegt og skapandi sem skilur eftir góðar minningar. Fyrir nánari upplýsingar, hópapantanir eða aðrar dagsetningar hafið samband í síma 546 8225 eða mamma@farvi.is.
"Dóttir mín er mikil listakona og hana langaði að prófa nýjar aðferðir við að þróa listaverkin sín. Við ákváðum því að skella okkur mæðgurnar saman til Farva á Riso workshop. Þetta var alveg meiriháttar kvöldstund sem við ætlum klárlega að endurtaka.
Það sem var meiriháttar: Heimilislegur andi og nánast einkakennsla og leiðsögn í tækninni þar sem hópurinn var ákkúrat ekki of stór né lítill. Svo er bara svo langt síðan ég hef gefið mér tíma til að staldra við og teikna - eitthvað sem ég ætti að gera meira af."
Þórhildur Laufey Sigurðardóttir - grafískur hönnuður