0
Karfan þín
Kynnstu töfraheimi risoprents á aðventunni með því að setja saman jólakort og jólamerkimiða með úrklippuaðferð. Verkið er svo prentað með risoprint aðferð og þú tekur með heim 20 stykki af þinni vinnu í tveimur litum. Engar tölvur - bara þú, jólagleði, hendur þínar og hugur sem sleppa sköpunarkraftinum lausum.
Vinnubúðirnar:
- Stutt kynning á riso og vinnsluaðferðum við tveggja lita analog prent.
- Við tökum svo fram skærin, límstiftið og alls kyns efni og þið setjið saman ykkar eigið jólakort/merkimiða með kolum, bleki, tússi, ljósmyndum, letri o.fl. Við verðum ykkur innan handar í ferlinu og það eru engar reglur.
- Prentum jólakortin/merkimiðana ykkar í 20 eintökum, í tveimur litum að ykkar vali.
Athugið:
Farvi skaffar allt efni en það er velkomið að koma með eigið útprentað efni (gæti verið gaman að koma með ljósmynd ef þið viljið hafa þess háttar á jólakortinu eða aðra jólalega grafík) en passa þarf að hafa það ekki stærra en A4 og ekki á stafrænu formi. Tölvupóstur er sendur út til þátttakenda með nánari upplýsingum daginn fyrir námskeið.
Námskeiðið hentar byrjendum sem og lengra komnum.
Staðsetning: Farvi , Álfheimar 4, 104 Reykjavík
Fjöldi þáttakenda: 6-8
Tímasetning: Klukkan 18.00
Lengd: +/- 3 klukkustundir
Verð: 14.900 kr.
Afbókun/endurgreiðsla: Til að fá námskeið endurgreitt að fullu þarf að afbóka fimm dögum fyrir námskeið - annars er endurgreitt að helming.
Breyting á dagsetningu: Breytingagjald þegar námskeið er flutt á milli dagsetninga er 1.500 kr. en 3.500 kr. ef það er gert innan við tveimur dögum fyrir námskeið.
Vinnubúðirnar eru einnig tilvaldar fyrir vina- og vinnustaðahópa til að koma saman og gera eitthvað skemmtilegt og skapandi sem skilur eftir góðar minningar. Fyrir nánari upplýsingar, hópapantanir eða aðrar dagsetningar hafið samband í síma 546 8225 eða mamma@farvi.is.
"Dóttir mín er mikil listakona og hana langaði að prófa nýjar aðferðir við að þróa listaverkin sín. Við ákváðum því að skella okkur mæðgurnar saman til Farva á Riso workshop. Þetta var alveg meiriháttar kvöldstund sem við ætlum klárlega að endurtaka.
Það sem var meiriháttar: Heimilislegur andi og nánast einkakennsla og leiðsögn í tækninni þar sem hópurinn var ákkúrat ekki of stór né lítill. Svo er bara svo langt síðan ég hef gefið mér tíma til að staldra við og teikna - eitthvað sem ég ætti að gera meira af."
Þórhildur Laufey Sigurðardóttir - grafískur hönnuður