0
Karfan þín
Góðgerðarnefnd Verzlunarskóla Íslands hélt fimmtudaginn 3. október tónleika í Háskólabíó til minningar um vinkonu sína og samnemanda Bryndísi Klöru Birgisdóttur. Á tónleikunum komu fram Aron Can, Bubbi Morthens, Friðrik Dór, GDRN, Ragnhildur Steinunn og Páll Óskar og gáfu þau öll vinnuna sína <3 Allur ágóði tónleikanna rennur í minningarsjóð Bryndísar Klöru.
Á tónleikunum voru einnig til sölu bleikir bolir og pokar með áprentaðri bleikri rós og allur ágóði af sölunni rann einnig í minningarsjóðinn. Meiri eftirspurn var eftir bolunum og pokunum en voru til sölu á tónleikunum og hér gefst möguleiki að tryggja sér eintak.
ATH. þeir sem lögðu inn pöntun á tónleikunum hafa þegar tryggt sér eintak og þurfa ekki að leggja hér inn pöntun. Góðagerðarnefndin verður í sambandi uppá greiðslu og afhendingu.
Einnig er hægt að leggja sjóðnum lið með frjálsum framlögu með því að aura á @gvi eða millifæra á reikningsnr. 0515-26-002591, kt. 441079-0609.
--------------------------------------
Bolurinn og pokinn eru handþrykktir á prentverkstæði Farva í Álfheimum með umhverfisvænum, vatnsblandanlegum prentlitum sem eru án PVC plastefna og Þalíns.
Bolurinn er úr 155 gsm þykkri lífrænni bómull frá Stanley/Stella - unisex stærðir XS / S / L
Pokinn er úr 160 gsm þykkri lífrænni bómull frá Stanley/Stella